GREENPEEL® Meðferðir

HVAÐ ER GREEN PEEL® ?
60 ára gömul meðferð

Christine Schrammek þróaði GREEN PEEL® meðferðina fyrir einum fimmtíu árum með það að markmiði að hjálpa fólki með óhreina eða skemmda húð. Grunnurinn að meðferðinni var þá sem nú blanda átta sérvaldra jurta sem innihalda ensími, steinefni og vítamín sem nuddað er í húðina. Hin upprunalega GREEN PEEL® meðferð hefur sannað sig um heim allan og er einungis fáanleg hjá lærðum snyrtifræðingum og húðsjúkdómalæknum og alltaf viðhaldið með sérvöldum vörum, m.a. hinu upprunlega BB kremi frá Dr.Schrammek. Með því að aðlaga jurtablönduna að hverri húðgerð má veita hverjum einstaklingi meðferð sem hentar húðgerð viðkomandi með þau markmið að augum sem viðkomandi vill nálgast. Auk þess að endurnýja húðina með flögnunarferlinu örvast frumuendurnýjun og kollagenmyndun húðarinnar. Kollagen er eitt af aðaluppistöðuefnum í bandvef húðarinnar og sér til þess að húðin haldist stinn og slétt.

Jurtirnar gera það að verkum að efsta húðlagið fer og frumuendurnýjun húðarinnar eykst. Meðferðin eykur endurnýjun hornhúðar og nuddið örvar auk þess blóðflæðið svo frumurnar fá aukna næringu og súrefni. Notað er sérstakt hringnudd sem lætur öreindir jurtannda nudda ysta lag húðarinnar. Þannig örvast vaxtarstöðvar húðarinnar og framleiðsla nýrra húðfruma eykst. Blóðrásarkerfi húðarinnar örvast verulega og hver húðfruma fær aukið súrefni. Nokkrum dögum síðar tekur ysta lag húðarinnar að flagna af.

Grunnurinn að GREEN PEEL meðferðinni er blanda af átta mismunandi jurtum. Ensím, steinefni og vítamín m.a. spírulína sem nuddað eru inn í húðina. Meðferðin gengur þannig fyrir sig að eftir að búið er að þrífa húðina vel þá er jurtablöndunni nuddað rólega inn í hana. Þar sem blandan er fremur gróf er tilfinningin svolítið eins og verið sé að nudda sandkornum á hana og misjafnt hvernig fólk þolir við. En snyrtifræðingur hlustar á líðan viðkomandi og nuddar þá eins lengi og þolir við. Þannig er flögnunarferli húðarinnar virkjað. Loks er jurtablöndunni strokið af og maski og ampúla ef við á þá er meðferð þá lokið í bili.

Áhrif þessarar meðferðar koma í ljós á 2-5 dögum eftir húðgerð hvers og eins. Á þeim tíma er mikilvægt að fylgja þeim ráðum sem snyrtifræðingur gefur og nota einungis sérstakar Dr.Schrammek vörur sem fylgja meðferðinni en ekki má bleyta andlitið með vatni í fimm daga – nema eftir Fresh Up!. Til að ljúka klassísku meðferðinni er komið í eftirmeðferð fimm dögum síðar þar sem húðin er vel nærð og dauðar húðfrumur nuddaðar af. Það fer eftir ástandi húðar undir niðri hversu margar meðferðir eru nauðsynlegar til að ná sem bestum árangri.

5 meðferðir eru í boði og fara þær eftir magni jurta og eru mis djúpar og mis mikil erting og flögnun. Margir vilja bara fríska upp á húðina og þá er mællt með minnstu meðferðinni bleyta má húðina eftir þá meðferð.

CLASSIC – Húðendurnýjun á 5 dögum

Þetta er hin “Klassíska” GREEN PEEL® meðferð. Eftir að búið er að þrífa húðina vel er jurtablönduni nuddað inn í húðina. Þetta virkjar flögnunarferli húðarinnar. Áhrifin koma í ljós á 2-5 dögum. Á þeim tíma er mikilvægt að fylgja þeim ráðum sem snyrtifræðingur gefur og nota einungis sérstakar Dr.Schrammek vörur sem þú færð með þér heim að meðferð lokini. Til að ljúka klassísku meðferðinni þá er komið í eftirmeðferð 5 dögum seinna þar sem húðin er vel nærð og dauðar húðfrumur eru nuddaðar af. Það fer eftir ástandi húðar undir niðri hversu margar meðferðir eru nauðsynlegar til að ná sem bestum árangri.

Meðferðartími er 60 mín

ENERGY Q10+ Húðendurnýjun og sinning húðar (nýjasta meðferðin)

Áliggjandi dauðar húðfrumur losna þegar að jurtblönduni er nuddað inn í húðina. Mikil endurnýjun og örvun á frumustarfsemi húðarinnar er í ENERGY +Q10. Húðin er fljótari að jafna sig en eftir Classic meðferðina. ENERGY +Q10 meðferðin er tilvalin fyrir óhreina húð, svo og húð sem að er að byrja að eldast eða vantar bjartara og fallegra yfirbragð auk húðar með litabreytingar.

ENERGY +Q10 virkar fullkomlega sem meðferð sem að þú getur komið í einu sinni í mánuði.Munurinn á ENERGY og ENERGY+Q10 er sá að meðferðin er aðeins öðruvísi í uppbyggingu, og bætt er við meðferðina Q10 sem er andoxandi og hjálpar frumunum að endurnýja sig.

ENERGY+Q10 er öflugri en ENERGY.

ENERGY – Sjáanlegur stinnleiki húða

Áliggjandi dauðar húðfrumur losna þegar að jurtblönduni er nuddað inn í húðina. En í stað þess að fá sérstaklega mikla flögnun eins og er í klassísku meðferðini þá verður mikil endurnýjun og örvun á frumustarfsemi húðarinnar. ENERGY meðferðin er tilvalin fyrir óhreina húð, svo og húð sem að er að byrja að eldast og einnig húð með litabreytingar. ENERGY virkar fullkomlega sem meðferð sem að þú getur komið í einu sinni í mánuði.

Meðferðartími er 60 mín

FRESH UP – Fljótleg fegurð 

Þessi meðferð örvar, endurnýjar og stinnir húðina án þess að hún flagni. Blóðrásin er örvuð og opnar húðholur verða mun minna sjáanlegar sem og að húðin verður nú mun móttækilegri fyrir virkum efnum sem sett eru á hana.Yfirbragð húðarinnar verður bjartara og ferskara.

MELA WHITE – Litabreytingar

Vottaðir meðferðaraðilar

Verði þinn vilji Borgartún 3 Reykjavík sími:517-9291 www.vilja.is

Pandora snyrti- og fótaðgerðastofa, Þangbakka 8-10, Reykjavík. 555 – 1006.

Heilsa og útlit Hlíðasmára 17, Kópavogur. Sími: 562 – 6969.

Snyrtistofan Túlip Hæðasmára 6, 201 Kópavogur. Sími: 566 – 6100.